Aðalfundur Hinsegin daga í Reykjavík

Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf samkvæmt félagslögum. Rétt til fundarsetu með kosningarétt og kjörgengi hafa félagar sem greitt hafa félagsgjald. Félagsaðild kostar 500 kr. og hægt er að endurnýja hana eða gerast félagi við upphaf fundarins.
 
Lýst er eftir framboðum til stjórnarkjörs. Samkvæmt félagslögum skal kjósa stjórn á aðalfundi til eins árs í senn til að gegna embættum formanns, varaformanns, gjaldkera, ritara og meðstjórnanda. Skrifleg framboð skulu hafa borist stjórn Hinsegin daga á netfangið pride@hinsegindagar.is í síðasta lagi viku fyrir aðalfund eða mánudaginn 20. febrúar. Athygli er vakin á að samkvæmt félagslögum þurfa frambjóðendur að hafa starfað með samstarfsnefnd Hinsegin daga að einni hátíð hið minnsta. Nánari upplýsingar um verkefni stjórnar má einnig fá hjá fulltrúum stjórnar í sama netfangi. Frambjóðendur skulu tilgreina þau embætti sem þeir sækjast eftir. Kosið er um einstaklinga en ekki lista.
 
Tillögur að breytingum á félagslögum Hinsegin daga skulu hafa borist stjórn félagsins fyrir 10. janúar og skulu sendar út með aðalfundarboði. Engar tillögur bárust fyrir þann tíma. Félagslög Hinsegin daga má finna hér.