Velkomin á Hinsegin daga 2017

Kæru vinir

Í byrjun þessa árs bárust þau ánægjulegu tíðindi að Hinsegin dagar hefðu verið valdir úr hópi fjölda hátíða og hlotið nafnbótina borgarhátíð Reykjavíkur. Útnefningin var staðfest með sérstökum þriggja ára samningi og fjárframlagi frá Reykjavíkurborg. Þessi útnefning staðfestir að Hinsegin dagar eru lykilhátíð í hátíðadagskrá borgarinnar og hafa ótvírætt gildi fyrir menningarlífið í borginni, alþjóðleg tengsl, ferðamennsku og ímynd – enda eru Hinsegin dagar fyrir löngu orðnir hefðbundinn þáttur í borgarlífinu. Samt er hátíðin ný á hverju ári.

Af þessu tilefni er þema Hinsegin daga árið 2017 hinsegin list og listafólk. Við erum svo lánsöm að vera rík af alls konar listafólki sem hefur verið óhrætt við að stíga fram í dagsljósið og spyrja óþægilegra spurninga um stöðu hinsegin fólks á Íslandi. Hinsegin listafólk ögrar með því sem það segir, gerir og sýnir. Það hefur verið mikilvægt breytingarafl og stuðlað að því að opna hug fólks gagnvart tilvist hinsegin fólks. Gestum hátíðarinnar býðst nú að njóta margs konar viðburða, m.a. á sviði ljósmyndunar, kvikmyndagerðar, tónlistar og bókmennta, og líkt og fyrri ár er fræðsluviðburðum gert sérstaklega hátt undir höfði.

Að lokum viljum við benda á nýja viðbót við gleðigönguna, Gleðigöngupottinn sem er styrktarstjóður fyrir atriði sem hyggjast taka þátt í gleðigöngu Hinsegin daga. Styrkjum úr sjóðnum er m.a. ætlað að aðstoða þátttakendur við að standa straum af kostnaði við hönnun atriða, leigu ökutækja og efniskaup. Frekari upplýsingar eru á hinsegindagar.is.

Gleðilega hátíð!

– Stjórn Hinsegin daga 2017 –
Eva María Þórarinsdóttir Lange, formaður
Gunnlaugur Bragi Björnsson, gjaldkeri
Jón Kjartan Ágústsson, varaformaður
Karen Ósk Magnúsdóttir, ritari
Vilhjálmur Ingi Vilhjálmsson, meðstjórnandi