Aðalfundur Hinsegin daga 2020

  • Aðalfundur Hinsegin daga í Reykjavík – Reykjavik Pride verður haldinn mánudaginn 3. febrúar 2020.
  • Fundurinn fer fram í húsnæði Samtakanna ’78 að Suðurgötu 3 og hefst kl. 17:30.

Dagskrá og félagsaðild

Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf samkvæmt samþykktum félagsins. Rétt til fundarsetu með kosningarétt hafa félagar sem greitt hafa félagsgjald. Félagsaðild kostar 500 kr. og er hægt að gerast félagi eða endurnýja félagsaðild við upphaf fundarins.

Framboð til stjórnar og skoðunarmanns reikninga

Samkvæmt samþykktum félagsins skal á aðalfundi kjósa sjö stjórnarmenn til eins árs í senn. Embættin sjö sem kosið er um eru formaður, gjaldkeri, ritari og fjórir meðstjórnendur. Athygli er vakin á að samkvæmt samþykktum félagsins þurfa frambjóðendur að hafa starfað með samstarfsnefnd Hinsegin daga að einni hátíð hið minnsta. Fundurinn kýs einnig skoðunarmann reikninga félagsins.

Framboð skulu berast skriflega á netfangið pride@hinsegindagar.is fyrir kl. 17:30 mánudaginn 27. janúar, þ.e. viku fyrir aðalfund. Frambjóðendur skulu tilgreina þau embætti sem þeir sækjast eftir. Athugið að kosið er um einstaklinga en ekki lista.

Nánari upplýsingar um verkefni stjórnar veitir Gunnlaugur Bragi Björnsson, fráfarandi formaður Hinsegin daga, á netfanginu gunnlaugur@hinsegindagar.is.

Breytingar á samþykktum félagsins

Tillögur að breytingum á samþykktum Hinsegin daga skulu hafa borist stjórn félagsins fyrir 10. janúar og skulu sendar út með aðalfundarboði. Fyrir fundinum liggur ein tillaga:

  1. Tillaga um breytt starfsár, reikningsár og tímasetningu aðalfundar. Tillöguna má sjá HÉR.

Núgildandi samþykktir Hinsegin daga má finna HÉR.