Aðalfundur Hinsegin daga í Reykjavík

  • Aðalfundur Hinsegin daga í Reykjavík – Reykjavik Pride verður haldinn mánudaginn 16. nóvember 2020, kl. 17:30.
  • Vegna samkomutakmarkanna fer fundurinn fram í gegnum fjarfundabúnaðinn Zoom.
  • Fundargestir eru beðnir um að skrá sig til þátttöku á fundinum .

Dagskrá og félagsaðild

Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf samkvæmt samþykktum félagsins. Rétt til fundarsetu með kosningarétt hafa félagar sem greitt hafa félagsgjald. Skráðir fundargestir fá senda slóð Zoom-fundarins ásamt greiðsluupplýsingum vegna félagsgjalda. Félagsaðild kostar 500 kr. og er hægt að gerast félagi eða endurnýja félagsaðild fram að aðalfundi.

Framboð til stjórnar og skoðunarmanns reikninga

Samkvæmt samþykktum félagsins skal á aðalfundi kjósa sjö stjórnarmenn til eins árs í senn. Embættin sjö sem kosið er um eru formaður, gjaldkeri, ritari og fjórir meðstjórnendur. Athygli er vakin á að samkvæmt samþykktum félagsins þurfa frambjóðendur að hafa starfað með samstarfsnefnd Hinsegin daga að einni hátíð hið minnsta. Fundurinn kýs einnig skoðunarmann reikninga félagsins.

Framboð skulu berast skriflega á netfangið pride@hinsegindagar.is fyrir kl. 17:30 föstudaginn 13. nóvember, þ.e. þremur sólarhringum fyrir aðalfund. Frambjóðendur skulu tilgreina þau embætti sem þeir sækjast eftir. Athugið að kosið er um einstaklinga en ekki lista.

Nánari upplýsingar um verkefni stjórnar veitir Vilhjálmur Ingi Vilhjálmsson, fráfarandi formaður Hinsegin daga, á netfanginu villi@hinsegindagar.is

Breytingar á samþykktum félagsins

Tillögur að breytingum á samþykktum Hinsegin daga skulu hafa borist stjórn félagsins fyrir 1. október og skulu sendar út með aðalfundarboði. Engar tillögur bárust.

Núgildandi samþykktir Hinsegin daga má finna HÉR.