Aðalfundur Hinsegin daga í Reykjavík

Aðalfundur Hinsegin daga í Reykjavík – Reykjavik Pride verður haldinn fimmtudaginn 7. febrúar 2019. Fundurinn fer fram í húsnæði Samtakanna ’78 að Suðurgötu 3 og hefst kl. 17:30.

Dagskrá og félagsaðild

Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf samkvæmt félagslögum. Rétt til fundarsetu með kosningarétt og kjörgengi hafa félagar sem greitt hafa félagsgjald. Félagsaðild kostar 500 kr. og er hægt að gerast félagi eða endurnýja félagsaðild við upphaf fundarins.

Framboð til stjórnar

Lýst er eftir framboðum til stjórnarkjörs. Samkvæmt félagslögum skal kjósa stjórn á aðalfundi til eins árs í senn. Skrifleg framboð skulu hafa borist stjórn Hinsegin daga á netfangið pride@hinsegindagar.is í síðasta lagi viku fyrir aðalfund eða fimmtudaginn 31. janúar.

Athygli er vakin á að samkvæmt félagslögum þurfa frambjóðendur að hafa starfað með samstarfsnefnd Hinsegin daga að einni hátíð hið minnsta. Nánari upplýsingar um verkefni stjórnar má fá hjá fulltrúum stjórnar í fyrrnefndu netfangi. Frambjóðendur skulu tilgreina þau embætti sem þeir sækjast eftir. Athugið að kosið er um einstaklinga en ekki lista.

Breytingar á samþykktum félagsins

Tillögur að breytingum á samþykktum Hinsegin daga skulu hafa borist stjórn félagsins fyrir 10. janúar og skulu sendar út með aðalfundarboði. Fyrir fundinum liggur ein tillaga frá fráfarandi stjórn félagsins:

  1. Tillaga að breytingu á fjórðu grein samþykkta Hinsegin daga um fjölda einstaklinga í stjórn félagsins. Sjá tillögu hér.

Núgildandi samþykktir Hinsegin daga má finna hér.