Sendinefnd Evrópusambandsins ásamt sendiráðum Frakklands, Finnlands, Írlands, Svíþjóðar og Þýskalands munu saman fjármagna aðgengi að hjólastólarampi á degi Gleðigöngunnar fyrir öll þau sem þurfa. Á Hinsegin dögum á allt hinsegin fólk og aðstandendur þess að geta tekið þátt í hátíðarhöldum og þess vegna hefur Sendinefnd Evrópusambandsins veitt Hinsegin dögum fjárstyrk undanfarin fimm ár til þess að tryggja bætt aðgengi yfir hátíðina.
„Okkur er umhugað um inngildingu og aðgengismál. Þess vegna ætlar Evrópusambandið og aðildarríki þess að veita Hinsegin dögum í Reykjavík aftur fjárstyrk til þess að tryggja hjólastólaaðgengi svo að sem flest geti notið hátíðarinnar sem best.“ – Clara Ganslandt, Sendiherra ESB á Íslandi.