Hinsegin bókmenntaganga

Borgarbókasafnið hefur boðið til bókmenntagöngu á Hinsegin dögum undanfarin þrjú ár og slær ekki af í ár. Gengið verður á vit hinsegin bókmennta í miðborginni, sagt frá, lesið og spjallað.

Lagt verður upp frá Borgarbókasafninu í Grófinni, Tryggvagötu 15 þaðan sem gengið verður að Gröndalshúsi, Unuhúsi og víðar.

Viðburðurinn fer fram á íslensku.