Nasdaq í samstarf við Hinsegin daga 2020

Fjölbreytnimenning innan fyrirtækja í brennidepli

Reykjavík, 27. júlí 2020 – Nasdaq tilkynnir um samstarf við Hinsegin daga 2020 annað árið í röð. Í samstarfsverkefni Hinsegin daga og Nasdaq á Íslandi (Kauphöllin og Nasdaq verðbréfamiðstöð) verður augunum aftur beint að stöðu, réttindum og líðan hinsegin fólks í atvinnulífinu, sem og annarra minnihlutahópa. Fjallað verður um hvernig hægt er að skapa fjölbreytnimenningu innan fyrirtækja sem verndar og styður allt starfsfólk óháð kyni, kynvitund, kynhneigð, kynþætti, þjóðerni eða aðstöðumun af einhverjum toga.

Nasdaq Iceland og Hinsegin dagar munu standa saman að tveimur viðburðum. Í upphafi Hinsegin daga, þann 4. ágúst verður viðskiptavinum og öðrum hagsmunaaðilum beggja aðila boðið að taka þátt í opnunarbjöllu markaðarins. Þá mun Richard Taylor, Vice President, Employee Experience hjá Nasdaq halda opið námskeið á vefnum þann 5. ágúst sem er ætlað stjórnendum fyrirtækja og öðrum áhugasömum. Þar verða hagnýt ráð gefin um hvernig koma megi á og hlúa að fjölbreytnimenningu innan fyrirtækja. Vefnámskeiðið verður auglýst á facebooksíðum Nasdaq Iceland og Hinsegin daga.

Þá mun Nasdaq ásamt Hinsegin dögum og Samtökunum 78 á næstu misserum standa að útgáfu leiðbeininga til fyrirtækja um hvernig skapa megi menningu fjölbreytni og án aðgreiningar innan fyrirtækja, sem munu geta nýst almenningshlutafélögum, öðrum fyrirtækjum og opinberum stofnunum sem grunnur að uppbyggingu fjölbreyttrar fyrirtækjamenningar.

„Samstarf okkar við Hinsegin daga á síðasta ári snérist um að vekja atvinnulífið til vitundar um málefni hinsegin fólks og hvetja fyrirtæki til að setja á dagskrá umræðu um stöðuna hjá sér,“ sagði Magnús Harðarson, forstjóri Nasdaq kauphallarinnar á Íslandi. „Í ár færum við samstarfið upp á næsta stig og ætlum að vinna með Hinsegin dögum og Samtökunum 78 að því að búa til leiðbeiningar um hvernig skapa megi menningu fjölbreytni og án aðgreiningar innan fyrirtækja. Markmiðið er að allt starfsfólk óháð kyni, kynvitund eða kynhneigð sem og þjóðerni eða annars aðstöðumunar sé verndað gegn mismunun; það geti upplifað sig öruggt í starfi, líði vel og finni að það geti náð árangri innan fyrirtækisins.“

„Nasdaq hefur dýrmæta reynslu af því að skapa gott vinnuumhverfi fyrir hinsegin fólk og aðra minnihlutahópa, vinnumhverfi sem einkennist af jafnrétti og fjölbreytileika,” segir Vilhjálmur Ingi Vilhjálmsson, formaður Hinsegin daga. „Það er því afar ánægjulegt að halda samstarfinu áfram og geta boðið atvinnulífinu hagnýtar leiðbeiningar og aðstoð. Það er nefnilega ekki nóg að gera kröfu um breytingar, við þurfum einnig að bjóða upp á leiðbeiningar til að fyrirtæki geti breytt. Það er staðreynd að fjölbreyttur vinnustaður, þar sem starfsfólk upplifir sig í öruggu umhverfi, skilar meiru bæði til einstaklinga, fyrirtækja og samfélagsins. Ég hef fulla trú á því að viljinn sé fyrir hendi innan íslensks atvinnulífs, nú loks getum við boðið upp á aðstoð til að taka næstu skref.“

Nasdaq er alþjóðlegt fyrirtæki sem starfar á 50 mörkuðum um allan heim. Það vinnur ötullega að fjölbreytni innan þess, þannig að allt starfsfólk óháð kyni, kynvitund eða kynhneigð finni að það sé hluti af og tilheyri vinnustað sem láti sig varða réttindi þess, vinnu og almennt öryggi og líðan. Í ár var Nasdaq, annað árið í röð, verðlaunað af Human Rights Watch fyrir að vera besti vinnustaðurinn fyrir hinsegin fólk, en réttindi og málefni hinsegin fólks eru hluti af jafnréttisstefnu fyrirtækisins. Nasdaq hlaut fullt hús stiga  samkvæmt 2020 Corporate Equality Index (CEI) sem gerir rannsóknir á stefnu og störfum fyrirtækja í málefnum LGBT+ starfsfólks.