Ný stjórn Hinsegin daga

Aðalfundur Hinsegin daga var haldinn í gærkvöldi. Á dagskrá voru hefðbundin aðalfundarstörf samkvæmt samþykktum félagsins, þar á meðal stjórnarkjör.

Á fundinum var Gunnlaugur Bragi Björnsson kjörinn formaður félagsins til næstu tveggja ára. Hann tekur við embættinu af Ásgeiri Helga Magnússyni sem setið hefur í stjórn Hinsegin daga frá árinu 2018, þar af sem formaður í eitt ár. Önnur sem kjörin voru í stjórn félagsins eru Leifur Örn Gunnarsson, Margrét Ágústa Þorvaldsdóttir, Ragnar Veigar Guðmundsson, Sandra Ósk Eysteinsdóttir og Sigurður H. Starr Guðjónsson.

Frá vinstri: Leifur Örn Gunnarsson, Margrét Ágústa Þorvaldsdóttir, Sandra Ósk Eysteinsdóttir, Gunnlaugur Bragi Björnsson, Ragnar Veigar Guðmundsson og Sigurður H. Starr Guðjónsson. 

Gunnlaugur sat áður í stjórn Hinsegin daga frá árinu 2013, fyrst sem gjaldkeri en síðar sem formaður í tvö ár. Þá hefur hann einnig setið í stjórn Samtakanna ’78 og Hinsegin kórsins.

Gunnlaugur Bragi Björnsson:

„Það er mér mikill heiður að fá tækifæri til að taka sæti í stjórn Hinsegin daga á ný eftir tveggja ára hlé á meðan ég bjó erlendis við nám og störf. Ég vil nota þetta tækifæri til að þakka fráfarandi formanni, Ásgeiri Helga Magnússyni, og þeim Elísabetu Thoroddsen, Herdísi Eiríksdóttur og Ragnhildi Sverrisdóttur, sem einnig hverfa úr stjórn félagsins, fyrir ómetanlegt framlag í þágu hinsegin fólks á Íslandi. 

Hinsegin dagar hafa í gegnum árin skipt gríðarmiklu í baráttunni fyrir auknum réttindum og sýnileika hinsegin fólks og ég hlakka til að vinna með nýrri stjórn að því að tryggja að svo megi áfram verða. Heimsfaraldurinn hefur svo sannarlega sett mark sitt á hátíðahöld síðustu tveggja ára. Af þeim sökum er þörfin fyrir sýnileika meiri en oft áður enda ljóst að ástand síðustu missera getur bitnað sérstaklega á jaðarsettum hópum. Við í nýrri stjórn Hinsegin daga bindum því vonir við að á árinu 2022 geti hinsegin fólk sameinast á götum Reykjavíkur á ný – hýrara, sýnilegra og stoltara en nokkru sinni fyrr.“

Hinsegin dagar verða haldnir í Reykjavík dagana 2.–7. ágúst 2022 og á dagskránni verður að vanda fjöldi fjölbreyttra viðburða. Dagskrá Hinsegin daga 2022 verður kynnt þegar nær dregur.