Kaupfélag Hinsegin daga er ekki bara litríkasta verslun landsins heldur einnig upplýsinga- og þjónustumiðstöð hátíðarinnar. Í kaupfélaginu er hægt að kaupa regnbogafána, skreytingar og margt fleira en ágóðinn rennur beint til mannréttindabaráttu og sýnileika hinsegin fólks.

Árið 2022 munu Hinsegin dagar í fyrsta sinn starfrækja PRIDE CENTER. Þar verður Kaupfélag Hinsegin daga til húsa en auk þess upplýsingamiðstöð, viðburðir og veitingar. Semsagt, kjörinn staður til að stoppa við og njóta góðs félagsskapar á Hinsegin dögum.
PRIDE CENTER, Gayrsgötu 9 – við gömlu höfnina í Reykjavík, verður opið sem hér segir:
- Föstudag 29. júlí – miðvikudag 3. ágúst kl. 11:00-23:00
- Fimmtudagur 4. ágúst kl. 11:00-01:00
(ath. miðasala frá kl. 20, sjá viðburð hér) - Föstudagur 5. ágúst kl. 11:00-01:00
- Laugardagur 6. ágúst kl. 11:00-14:00
- Athugið: Reglulegur opnunartími Kaupfélagshluta PRIDE CENTER er til 18:00 en stundum opið lengur eftir föngum.
Við bendum einnig á Hinsegin kaupfélagið, netverslun Hinsegin daga og Samtakanna ’78