Bókmenntaviðburðurinn Hýrir húslestrar er fyrir löngu orðinn órofa partur af dagskrá Hinsegin daga enda eru bókmenntir mikilvægur þáttur í menningu okkur. Undanfarin ár hafa hin ýmsu skáld lesið úr textum sínum og það verður spennandi að vita hvaða mektar- og listafólk mun skapa óviðjafnanlega stemmningu með ljóðum sínum og sögum að þessu sinni. Úrslit ljóðasamkeppni Hinsegin daga verða einnig kunngjörð.
Viðburðurinn fer fram á íslensku.
Ljóðasamkeppni
Ljóðasamkeppni Hinsegin daga verður nú haldin í fjórða sinn. Undanfarin ár hafa fjölmörg skáld stigið fram á sjónarsviðið í þessari einstöku samkeppni sem sannarlega má segja að sé á heimsmælikvarða. Skúffuskáld sem önnur skáld eru hvött til þess að draga fram stílabækur, Word-skjöl, kassakvittanir og hvað annað sem verk þeirra kunnu að leynast á og senda á netfangið huslestrar@gmail.com fyrir 1. ágúst.
Ljóðin mega vera á hvaða tungumáli sem er en ekki er ábyrgst að dómnefnd skilji önnur tungumál en íslensku og ensku. Dómnefnd fær ljóðin nafnlaust og verður ekki upplýst um sigurvegara keppninnar fyrr en á Hýrum húslestrum 9. ágúst nk.