Regnbogaráðstefna Hinsegin daga 2023 fer fram í Iðnó, fimmtudaginn 10. ágúst.
Á ráðstefnunni verður fjallað um það sem helst brennur á hinsegin fólki en meðal annars verður fjallað um unað í alls konar líkömum, líkamsvirðingu innan hinsegin samfélagsins, stefnumótamenningu fatlaðs hinsegin fólks, hinsegin og íþróttir, hinsegin ungmennastarf og samstöðu kvenréttindahreyfinga og hinsegin fólks á tímum bakslags. Þá verður einnig fjallað um ritskoðun á hinsegin list í tilefni af því að fjörutíu ár eru liðin síðan listasýning Göran Ohldieck og Kjetil Berge sætti ritskoðun í Norræna húsinu og kynntar verða niðurstöður rannsóknar á reynslu hinsegin flóttafólks á félagslegri inngildingu og útskúfun.
Regnbogaráðstefna Hinsegin daga 2023 er styrkt af Rannís.
Dagskrá
Hátíðarsalur (1. hæð) | Sunnusalur (2. hæð) | |
09:00- 09:30 | Innskráning og kaffi | |
09:30- 09:45 | Setning Regnborgaráðstefnu 2023 | |
09:45- 10:45 | Samstaða kvenréttindahreyfinga og hinsegin hreyfinga á tímum bakslags Pallborð á íslensku | Masks: a Censored Exhibition – a Discussion on the Censorship of Queer Art and Artists Pallborð á ensku |
11:00- 12:00 | (Queer) Dating with Disabilities – Stefnumót með fötlun Dagskrárliður á ensku | Hinsegin ungmennastarf Dagskrárliður á íslensku |
12:00- 12:45 | Hádegisverður | |
12:45- 13:45 | Unaður í alls konar líkömum Pallborð á íslensku | Queer Refugees in Queer Utopias Dagskrárliður á ensku |
14:00- 15:00 | Hinsegin og íþróttir Pallborð á íslensku | Queer in All Shapes and Sizes Pallborð á ensku |
15:15- 16:00 | „We don’t have such people here“ Dagskrárliður á ensku |
Nánari upplýsingar um dagskrárliði ráðstefnunnar
Samstaða kvenréttindahreyfinga og hinsegin hreyfinga á tímum bakslags
Kvenréttindahreyfingar og hinsegin hreyfingar geta vel staðið saman og barist gegn anti-trans áróðri og upplýsingaóreiðu.
Frummælendur:
- Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir, sérlegur ráðgjafi Kvenréttindafélagsins
- Birta Ósk, frá Kvenréttindafélaginu
- Þorbjörg Þorvaldsdóttir, verkefnastýra hjá Samtökunum ’78
- Ólöf Bjarki Antons, formaður Trans Íslands
- Svandís Anna Sigurðardóttir, sérfræðingur í hinsegin og kynjajafnréttismálum
Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir stýrir umræðum.
Pallborðið fer fram á íslensku.
Masks: a Censored Exhibition – a Discussion on the Censorship of Queer Art and Artists
Umfjöllun um ritskoðun hinsegin listar í tilefni af því að fjörutíu ár eru liðin síðan listasýningin GRÍMUR eftir myndlistarmennina Göran Ohldieck og Kjetil Berge sætti ritskoðun í Norræna húsinu.
Þátttakendur eru:
Ynda Eldborg, sýningarstýra
Kjetil Berge, listamaður
Böðvar Björnsson, fyrrverandi aktívisti hjá Samtökunum ’78.
Katrín Oddsdóttir, lögræðingur
Pallborðið fer fram á ensku.
(Queer) Dating with Disabilities – Stefnumót með fötlun
Pallborðsumræður fjölbreyttra meðlima hinsegin samfélagsins um þær áskoranir og þau tækifæri sem eru til að hefja og viðhalda rómantísku sambandi sem hinsegin einstaklingur með fötlun.
Þátttakendur:
- Embla Guðrúnar Ágústsdóttir, feminískur fötlunaraktivisti
- Kolbeinn Arnaldur Dalrymple
Dagskrárliðurinn fer fram á ensku.
Hinsegin ungmennastarf
Á síðustu árum hefur verið mikil gróska í hinsegin ungmennastarfi en boðið er upp á félagslega viðburði fyrir hinsegin ungmenni víðs vegar á höfuðborgarsvæðinu og víðar. Fjallað verður um áskoranir og mikilvægi hinsegin ungmennastarfs.
Sigmar Ingi Sigurgeirsson, umsjónarmaður Hinsegin hittinga í Hafnarfirði, og Sigur Huldar Ellerup Geirs, sjálfboðaliði hjá HinUng og hinsegin félagsmiðstöð Samtakanna ‘78 og Tjarnarinnar, stýra umræðum.
Dagskrárliðurinn fer fram á íslensku.
Unaður í alls konar líkömum
Umræðuvettvangur þar sem markmiðið er að skapa rými fyrir fjölbreytt fólk innan hinsegin samfélagsins til að ræða unað, þætti sem geta haft áhrif á unað og hvernig það er að brjótast út úr hinu heterónormatíva kynlífshandriti.
Aldís Þorbjörg Ólafsdóttir, sálfræðingur og kynlífsráðgjafi, Embla Guðrúnar Ágústsdóttir, félagsfræðingur og aktívisti, og Unnsteinn Jóhannsson, kynfræðingur, stýra dagskrárliðnum.
Pallborðið fer fram á íslensku.
Queer Refugees in Queer Utopias
Í málstofunni verður fjallað um verkefnið Hinsegin flóttafólk í hinsegin paradís, sem styrkt er af Rannís. Markmið verkefnisins er að rannsaka reynslu hinsegin flóttafólks af félagslegri inngildingu og útskúfun, í lagalegu og félagslegu samhengi, á Íslandi og í tengslum við endursendingu til Grikklands og Ítalíu.
Þátttakendur:
- Maja Hertogh
- Guðbjörg Ottósdóttir
- Linda Sólveigar- og Guðmundsdóttir
- Árdís Ingvars
Dagskrárliðurinn fer fram á ensku.
Hinsegin og íþróttir
Sérfræðingar á sviði hinsegin íþrótta svara þeim spurningum sem eru efst á baugi í íþróttasamfélaginu í dag.
Þátttakendur:
- Birta Björnsdóttir – ÍBR
- Svandís Anna Sigurðardóttir – Reykjavíkurborg
- Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir – ÍSÍ
- Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir – KSÍ
- Reyn Alpha Magnúsar – Trans Ísland
Sveinn Sampsted stýrir umræðum.
Pallborðið fer fram á íslensku.
Queer in All Shapes and Sizes
Líkamsskömm af ýmsu tagi er því miður enn til staðar í samfélagi hinsegin fólks. Í pallborðsumræðum sem Bangsafélagið stendur fyrir verður fjallað um málefni tengd jákvæðri líkamsímynd, sýnileika og samþykki bangsa í hinsegin samfélaginu.
Pallborðið fer fram á ensku.
„We don’t have such people here“
Samtökin NC SOS Crisis Group aðstoða hinsegin flóttafólk við að flýja Norður-Kákasus svæðið, þar sem öryggi þeirra er ekki tryggt.
Ugla Stefanía stýrir pallborðsumræðum ásamt fulltrúum NC SOS:
- Lucy Shtein, liðskona Pussy Riot og fulltrúi NC SOS
- Elizaveta Samoilova, alþjóðafulltrúi NC SOS
- David Isteev, hinsegin aktivisti
Dagskrárliðurinn fer fram á ensku.