Stjórn Hinsegin daga auglýsir eftir einstaklingum í ritstjórn tímarits Hinsegin daga sem árlega er gefið út í þúsundum eintaka.
Ritstjórn tímaritsins annast efnistök þess, greinaskrif, viðtöl og fleira í samráði við stjórn hátíðarinnar. Vinna við tímarit Hinsegin daga er í þann mund að hefjast en áætlað er að blaðið fari í prentun um miðjan júní.
Meginstörf ritstjórnar fara því fram frá því í apríl fram að umbroti og yfirlestri í byrjun júní. Um er að ræða skemmtilegt verkefni sem t.d. er hægt er að sinna meðfram vinnu eða skóla.
Helstu verkefni:
- Mótun efnistaka og ritstjórnarstefnu í samræmi við þema og í samráði við stjórn hátíðarinnar
- Skrif greina og viðtala
- Heimildaöflun og hugmyndavinna
- Samskipti við viðmælendur, grafískan hönnuð og aðra sem að blaðinu koma
Hæfniskröfur:
- Menntun eða reynsla á sviði blaðamennsku eða ritlistar er æskileg en ekki skilyrði
- Áhugi á mannlífi og menningu
- Skapandi og lausnamiðuð hugsun
- Framúrskarandi samskiptahæfni
- Geta til að vinna undir álagi
- Góð íslensku- og enskukunnátta
- Þekking á hátíðahöldum Hinsegin daga, hinsegin samfélagi og menningu er kostur
Ritstjórnarfulltrúar eru sjálfboðaliðar, líkt og aðrir sem koma að skipulagningu og framkvæmd Hinsegin daga. Stjórn hátíðarinnar leitast þó við að greiða lykilsjálfboðaliðum útlagðan kostnað eins og hægt er hverju sinni.
Nánari upplýsingar og umsóknarfrestur
Nánari upplýsingar veitir Karen Ósk, gjaldkeri Hinsegin daga og ritstjóri tímarits Hinsegin daga, á netfanginu karen@hinsegindagar.is. Tímarit Hinsegin daga 2018 má sjá hér og önnur eldri tímarit hér.
Umsóknir sendist til stjórnar Hinsegin daga á netfangið pride@hinsegindagar.is merktar (subject) “Umsókn – Ritstjórn Hinsegin daga”. Í umsókn skal tekið fram ef óskað er eftir að skrifa um ákveðið efni. Umsóknarfrestur er til og með 12. apríl.