Opnunarhátíð Hinsegin daga 6. ágúst

Keyrum Hinsegin daga 2024 í gang með trompi og njótum dýrmætrar samveru með hinsegin stórfjölskyldunni! Gróska og Eiríksdóttir opna kl. 18:00 og verður hægt að koma sér fyrir á Eiríksdóttur og gæða sér á góðum mat og drykkjum. Dagskráin hefst kl. 20:00 með fjölbreyttum atriðum sem hita okkur upp fyrir frábæra viku og við klárum kvöldið á dansgólfinu með DJ Alexander.

Fram koma: Bashar Murad, Söngleikjakórinn Viðlag, RÁN, Crisartista, House of Heart, Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir, TORFI, Bjarni Snæbjörnsson, Bára Halldórsdóttir, Friðrik Agni Árnason og fleiri. 

Hátíðarræðu að þessu sinni flytur Hanna Katrín Friðriksson, þingkona.

Stjórnendur opnunarhátíðar eru Bjarni Snæbjörnsson og Gréta Kristín Ómarsdóttir.

Opnunarhátíð Hinsegin daga er í samstarfi við Krónuna.

Í stuttu máli:

Þriðjudaginn 6. ágúst
Húsið opnar kl. 18:00
Dagskrá hefst kl. 20:00

Miðaverð: 3.900 kr. Miðasala fer fram á Tix.is