Hið eina sanna ættarmót hinsegin fólks markar upphaf 20 ára afmælishátíðar Hinsegin daga! Hér kemur fjölskyldan saman og á þessum merku tímamótum verður litið um öxl og þess minnst sem á daga okkar hefur drifið frá því að fyrsta hinsegin hátíðin var haldin á Ingólfstorgi 26. júní árið 1999. Við skyggnumst í fjölskyldualbúmið og að venju mun hópur framúrskarandi listafólks stíga á stokk og færa okkur söng, dans og gleði í hæsta gæðaflokki.
Fordrykkur í boði fyrir fyrstu gesti frá kl. 20.
Verð í forsölu til 7. ágúst: 2.900 kr. Fullt verð: 3.500 kr.
18 ára aldurstakmark
Svona var stemningin í fyrra!