Ótrúleg útihátíð á laugardaginn!

Að venju blása Hinsegin dagar til útihátíðar í Hljómskálagarði eftir Gleðigönguna á laugardaginn. Dagskráin verður stútfull af lífi og fjöri, með sérstakri hátíðarræðu frá nýkjörnum forseta Íslands, Höllu Tómasdóttur.

Fram koma:

  • Bashar Murad ásamt Viðlagi
  • The Gender Benders
  • Blossi
  • Bjarni Snæbjörnsson
  • Saga Matthildur
  • Una Torfa
  • RÁN
  • Páll Óskar

Kynnar eru Bashar Murad og Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir.

Dagskráin hefst eftir Gleðigönguna, á bilinu 15:00-15:30. Hægt verður að fylgjast með dagskránni í streymi.

Aðgengisupplýsingar