Týpískt fyrir tvíbura!

„The first thing somebody notices about me is my big, wet…smile!“
– Jujubee

Við teljum niður í stærstu dragsýningu landsins! Nú er allt á fullu, dansararnir eru að æfa fetturnar og drottningarnar bretturnar, Jujubee er búin að púðra nefið, fjaðrirnar hafa verið límdar á bóurnar og confetti-inu troðið í staukana. Um leið og við hlökkum yfirgengilega mikið til að sjá ykkur öll í gleðinni og glimmerinu, þá höfum við þær fréttir að færa að af óviðráðanlegum ástæðum kemst Raja Gemini ekki til landsins í tæka tíð til fyrir sýninguna á morgun. Hún verður því ekki með okkur á sviðinu í Gamla bíó annað kvöld. Það er svo sem ekki við öðru að búast, nú þegar Merkúr er í afturhvörfum.

„My goodness, I would fuck me.“
– Jujubee

Við erum samt yfirgengilega spennt að hitta Jujubee og hin úr íslensku draghirðinni. Jujubee er algjört aðdáendauppáhald og reynslumesti keppandi RuPaul’s Drag Race, hafandi keppt fjórum sinnum! Við höfum engar áhyggjur af því að hennar stóri persónuleiki, og enn stærri lendar, fylli ekki herbergið!

Aðdáendum, sem ekki hyggjast nýta miðann sinn vegna þessara frétta, er bent á að hafa samband við info@tix.is.