Aðalfundur Hinsegin daga 2023

Aðalfundur Hinsegin daga í Reykjavík – Reykjavik Pride verður haldinn fimmtudaginn 23. nóvember 2023. Fundurinn fer fram í húsnæði Samtakanna ’78 að Suðurgötu 3 og hefst kl. 17:30.

Dagskrá og félagsaðild

Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf samkvæmt samþykktum félagsins, þ.e.:

  • Kosning fundarstjóra og fundarritara
  • Skýrsla stjórnar
  • Áritaðir reikningar fyrra reikningsárs lagðir fram til umræðu og samþykktar
  • Fjárhagsáætlun nýs reikningsárs kynnt
  • Ákvörðun félagsgjalda
  • Breytingar á samþykktum félagsins
  • Kjör stjórnar, sbr. grein 4.1 og eins skoðunarmanns reikninga til eins árs í senn
  • Önnur mál

Rétt til fundarsetu með kosningarétt hafa félagar sem greitt hafa félagsgjald. Hægt er að gerast félagi eða endurnýja félagsaðild við upphaf fundarins.

Framboð til stjórnar og skoðunarmanns reikninga
Samkvæmt samþykktum félagsins skal á aðalfundi kjósa stjórnarmenn til tveggja árs í senn. Kosið er í embætti stjórnar á víxl, að jafnaði er því kosið í fjögur embætti annað árið og í þrjú embætti hitt. Að þessu sinni skal kosið um eftirfarandi embætti:

–   Formaður, til tveggja ára

–   Tveir meðstjórnendur, til tveggja ára.

Auk þess verður, vegna breytinga í stjórn, kosið um eftirfarandi embætti:

–   Embætti ritara, til eins ár

–   Embætti tveggja meðstjórnanda, til eins árs

Um kjörgengi til stjórnar fer samkvæmt lið 3.2. í samþykktum félagsins.

Framboð skulu berast skriflega þremur sólarhringum fyrir aðalfund. Áhugasöm skulu því senda framboð á netfangið pride@hinsegindagar.is fyrir kl. 17:30 mánudaginn 20. nóvember. Frambjóðendur skulu tilgreina þau embætti sem þeir sækjast eftir.

Nánari upplýsingar um verkefni stjórnar veitir Gunnlaugur Bragi Björnsson, fráfarandi formaður Hinsegin daga, á netfanginu gunnlaugur@hinsegindagar.is.

Fundurinn kýs einnig skoðunarmann reikninga félagsins. Kjörgengir eru allir félagar og hægt er að bjóða sig fram í það embætti á fundinum.

Breytingar á samþykktum félagsins
Tillögur að breytingum á samþykktum Hinsegin daga skulu hafa borist stjórn félagsins fyrir 15. október og skulu sendar út með aðalfundarboði.

Engar tillögur að breytingum bárust. Núgildandi samþykktir má finna á: https://hinsegindagar.is/um-hinsegin-daga/felagslog/