Þann 22. júní var opnað fyrir skráningu í Gleðigöngu Hinsegin daga og á sama tíma var opnað fyrir styrkumsóknir úr Gleðigöngupotti Hinsegin daga og Landsbankans. Umsóknarfrestur rann út 7. júlí og í kjölfarið voru umsóknir yfirfarnar af sérstakri dómnefnd sem skilaði tillögum að úthlutun til stjórnar Hinsegin daga. Tillögur dómnefndar voru samþykktar 12. júlí og öllum umsækjendum svarað í kjölfarið.
Að vanda barst fjöldi litríkra og skemmtilegra umsókna. Að lokinni vandlegri yfirferð var ákveðið að veita eftirtöldum hópum/atriðum styrki til undirbúnings þátttöku í Gleðigöngu Hinsegin daga 2022:
- Ásar á Íslandi
- Bangsafélagið
- BDSM á Íslandi
- Hinsegin félagsmiðstöð
- Hinsegin Fél-AK
- Hinsegin kórinn / Reykjavík Queer Choir
- Hópur tví- og pankynhneigðra
- Minningarstund – Dragdrottning Íslands
- Minority Voice Iceland (MVI)
- Pilkington Props
- Trans Ísland
- Æði vagninn
Í dómefnd sátu Andrean Sigurgeirsson, Anna Eir Guðfinnudóttir, Leifur Örn Gunnarsson, Sigurður Starr Guðjónsson og Viima Lampinen.
Við óskum styrkþegunum til hamingju og góðs gengis í undirbúningnum!