Málum gleðirendur

Það er orðin hefð að mála regnboga í Reykjavík til að opna Hinsegin daga en í tengslum við síðustu fimm hátíðir hefur regnboginn prýtt fjóra fallega staðið í miðborg Reykjavíkur:

  • 2015: Skólavörðustígur
  • 2016: Tröppur Menntaskólans í Reykjavík
  • 2017: Við Ráðhús Reykjavíkur
  • 2018: Skólavörðustígur

Að þessu sinni verður regnboginn á Klapparstíg frá Laugavegi upp að Grettisgötu.

Götumálunin er unnin í samstarfi við Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar og er hluti af verkefninu Torg í biðstöðu í miðborg Reykjavíkur. Sjálfboðaliðar sem vilja taka þátt eru hvattir til að mæta með eigin pensla.