„Ljósið“ er lag Hinsegin daga

Elín Eyþórsdóttir, betur þekkt sem Elín Ey, er höfundur og flytjandi lags Hinsegin daga árið 2020. Hún hefur komið fram víðs vegar um heim, bæði ein með gítarinn og með hljómsveit sinni, Sísí Ey. Þórhildur Elínardóttir hitti listakonuna á Café Rosenberg á dögunum og ræddi lagið og sköpunarferli þess.

Þú finnur lagið á Spotify!

Nafn: Elín Ey

Fornöfn: Hún

Aldur: 29 ára

Hvað heitir lagið? Ljósið.

Um hvað er lagið? Það er, í mjög stuttu og einföldu máli, um það að hver og einn má vera eins og hann vill.

Samdir þú bæði lagið og textann? Já. Það var líka pródúsent að vinna lagið með mér sem heitir Pálmi Ragnar Ásgeirsson.

Hvernig hefur sköpunarferlið gengið hingað til? Ef ég á að vera alveg heiðarleg, þá var ég bara ótrúlega stressuð fyrst. Mér fannst þetta vera ótrúlega mikil pressa og ég þjáist stundum af svona sjálfsefasemdum um hvort ég geti gert eitthvað nógu gott. Svo fór ég í framkvæmd og lagið kom bara til mín; allavega kórusinn, hann kom bara til mín og svo hef ég verið að hafa aðeins meira fyrir textanum sjálfum. Mér finnst mjög krefjandi að semja á íslensku; að koma því til skila sem ég vil koma til skila á íslensku í tónlist án þess að það hljómi asnalega í mínum eyrum.

Hvað hefur þetta ferli tekið langan tíma? Allt í allt þá hefur þetta verið svona mánuð í bígerð. En ég hef verið að vinna í laginu í sjö eða átta daga í heildina.

Hver var innblásturinn bak við textann? Bara hinseginleikinn almennt. Innblásturinn er baráttuandinn, að hver og einn megi vera eins og hver vill.

Ef þú þyrftir að lýsa laginu með aðeins einu orði, hvaða orð myndirðu nota? Um lagið í einu orði, út frá tónlistinni, þá myndi ég segja stuð. Fyrir þá sem ekki vita þá sem ég oftast mjög tregafulla og sorglega tónlist en þetta er hressasta lag sem ég hef samið.

Semur þú mikið um hinsegin málefni? Ég sem mjög mikið um tilfinningalegar afleiðingar þess að vera hinsegin, án þess að það sé beint hægt að lesa það úr textanum. Ég held að ósjálfrátt, af því að ég er hinsegin, þá semji ég um eitthvað hinsegin.

Er eitthvað sem þú vilt bæta við að lokum?

Það var mikill heiður að vera beðin um að semja hinsegin lagið í ár.

Ferlið var krefjandi. Ég var óviss um hvert ég vildi fara með lagið og það að vera beðin um að semja lag fyrir einhvern er nýtt fyrir mér og ég fann fyrir ótta yfir því að bregðast eða valda vonbrigðum. Chorusinn kom til mín og ég byggði lagið í kringum hann, ég vildi nýta tækifærið og ögra sjálfri mér og gera „hresst“ og upplífgandi lag. Talaði við produsent sem að ég vissi að myndi fara með lagið í þá átt sem mig langaði með það, hann Pálma Ragnar og ég sé ekki eftir því. Ég er reynslunni ríkari og ánægð með útkomuna, takk fyrir mig.

Höfundur: Þórhildur Elínardóttir Magnúsdóttir