Pride Centre ársins 2025 er í IÐNÓ við Tjörnina.
Hjólastjólaaðgengi: Aðalinngangur IÐNÓ er nægilega breiður fyrir flestar tegundir hjólastóla. Athugið að takki er til að opna aðalinganginn, en hann getur verið stífur og dyrnar eru þungar. Húsnæðið er á tveimur hæðum. Lyfta er á aðra hæð og er hún nægilega kraftmikil fyrir flestar tegundir stóla (nánar í myndbandi). Salerni fyrir hreyfihömluð er á jarðhæð. Því miður er ekki aðgengi fyrir stærri hjólastóla en aðgengilegt salerni fyrir alla hjólastóla er í Ráðhúsi Reykjavíkur.
Almennur opnunartími í Ráðhúsi Reykjavíkur er:
Virka daga kl: 8:00-18:00
Laugardaga kl: 10.00-18:00
Sunnudaga kl: 12:00-18:00
Hljóðvist: Hljóðvist í IÐNÓ er til fyrirmyndar í hátíðarsalnum og með ágætum í Sunnusal. Í andrými IÐNÓ er hljóðvist ekki sérstök en mikið er um umhverfishljóð og kliður ef fjöldi er mikill. Þau sem nota heyrnatæki geta notað þau án vandkvæða. Þegar mörg eru í IÐNÓ þá getur skynáreiti verið töluvert, sérstaklega í Sunnusal og við inngang en í hátíðarsal er rýmið það stórt að hljóð dreifist vel og því ekki nema á mjög fjölmennum viðburðum þar sem skynáreiti getur orðið mikið. Hægt er að nálgast ókeypis eyrnartappa í Hinsegin kaupfélaginu á meðan að hátíð stendur.
Salerni: Salerni verða öll kynhlutlaus á meðan að hátíð stendur.
Bílastæði: Næstu P-merkisstæði eru á Lækjargötu við Tjarnars´kola og á Kirkjutorgi við Templarasund, en einnig eru stæði fyrir hreyfihamlaða á Tjarnargötu og í Ráðhúsinu.