Viðburðir Hinsegin daga eru að mestu haldnir í Pride Centre, en eru einnig á fleiri stöðum víðsvegar um bæinn. Aðgengi á OFF-VENUE viðburðum er ekki á ábyrgð Hinsegin daga.
Hljómskálagarður

Útihátíð Hinsegin daga fer fram í Hljómskálagarðinum. Þar verður sérstakur áhorfendapallur fyrir hjólastóla, sem er merktur með regnbogafána, auk Evrópusambandsfána, en pallurinn er í samstarfi við sendinefnd Evrópusambandsins á Íslandi og fleiri sendiráð. Hægt verður að nálgast eyrnatappa við aðgengispallinn. Klósett fyrir hreyfihamlaða verða við svið, norðvestan við Þorfinnstjörn og við inngang í garðinn gegnt Bragagötu (sjá kort).


Gleðigangan
Bílastæði fyrir hreyfihamlaða þátttakendur í göngunni verða við Hallgrímskirkju (sunnan megin). Bílar með P-merki komast í gegnum mannaða lokun við gatnamót Barónsstígs og Eiríksgötu.
Að auki er hægt að hleypa fólki út við lokun við Bergþórugötu/Frakkastíg.
Í ár verður boðið upp á skynvænan strætó þar sem áhersla er lögð á að minnka áreiti af hljóði og ljósum. Hægt er að skrá sig hér og nánari upplýsingar verða sendar út í tölvupósti fyrir gönguna.