Aðalfundur Hinsegin daga var haldinn í gær, 19. nóvember, í sal Samtakanna ’78 að Suðurgötu 3.
Ný stjórn var kjörin fyrir árið 2026-2027. Valdimar Elí Kristjánsson var kjörinn nýr formaður stjórnar, en hann hefur setið í stjórn félagsins undanfarin tvö ár. Michael Ryan var endurkjörinn gjaldkeri félagsins, Ragnheiður Ásta Þorvarðardóttir var endurkjörin ritari og Pétur Óli Anderson endurkjörinn meðstjórnandi. Kristín Rós Birgisdóttir var einnig kjörin sem meðstjórnandi.

Valdimar Elí Kristjánsson, nýkjörinn formaður Hinsegin daga, var þakklátur fyrir stuðninginn sem honum var sýndur á aðalfundi og er spenntur fyrir komandi árum.
Stjórn Hinsegin daga vill færa Helgu Haraldsdóttur, fráfarandi formanni Hinsegin daga, innilegar þakkir fyrir ómetanlegt starf hennar í þágu hátíðarinnar undanfarin ár. Helga hefur setið í stjórn frá árinu 2018, þar af síðustu þrjú ár sem formaður, og átt ríkan þátt í að efla hátíðina, skerpa sýn hennar og koma henni á þann stað sem hún er í dag.
Helga hefur lagt sérstaka áherslu á aðgengi fyrir öll og að efla þátttöku og hlutdeild samfélagsins í hátíðinni, með það að leiðarljósi að öll geti tekið þátt á eigin forsendum og fundið sig velkomin. Hún hefur jafnframt verið einstaklega lunkin við að draga fram styrkleika fólks, hvetja aðra áfram og skapa rými þar sem fólk fær að njóta sín.
Við þökkum Helgu af heilum hug fyrir allt hennar framlag, eldmóð og einstöku nærveru og óskum henni alls hins besta í þeim verkefnum sem fram undan eru.
Stjórn Hinsegin daga 2026-2027 er:
- Valdimar Elí Kristjánsson, formaður
- Michael Ryan, gjaldkeri
- Ragnheiður Ásta Þorvarðardóttir, ritari
- Alexander Aron Guðjónsson, meðstjórnandi
- Kristín Rós Birgisdóttir, meðstjórnandi
- Pétur Óli Anderson, meðstjórnandi
- Sigríður Ásdís Þórhallsdóttir, meðstjórnandi
