Gleðigöngupotturinn er samstarfsverkefni Hinsegin daga og Landsbankans sem verið hefur stoltur styrktaraðili Hinsegin daga um árabil. Einstaklingum og hópum sem vilja skipuleggja fjölbreytt, áhugaverð og táknræn atriði til þátttöku í Gleðigöngu Hinsegin daga er bent á að sækja um á sérstakri umsóknarsíðu.
Hvað er Gleðigöngupottur?
Gleðigöngupotturinn er styrktarstjóður fyrir atriði sem hyggjast taka þátt í Gleðigöngu Hinsegin daga. Styrkjum úr sjóðnum er m.a. ætlað að aðstoða við að standa straum af kostnaði við hönnun atriða, leigu ökutækja og efniskaup.
Fjárhæðir og úthlutun
Dómnefnd velur styrkþega úr innsendum umsóknum og úthlutar styrkjum með það að markmiði að styðja framúrskarandi hugmyndir til framkvæmda. Miðað er við að fjárhæðir styrkja úr Gleðigöngupottinum séu á bilinu 100.000-500.000 kr.
Gleðigöngupotturinn varð til við undirritun samnings þess efnis á milli Hinsegin daga og Landsbankans þann 21. júní 2017. Árlega leggur Landsbankinn 1.500.000 kr. í pottinn og skal úthluta öllu fénu til styrkja en dómnefnd hefur þó heimild til að halda eftir að hámarki 200.000 kr. til veitingar hvatningarverðlauna að hátíð lokinni.
Umsóknir
Formlegir og óformlegir hópar hinsegin fólks og velunnara þeirra geta sótt um í Gleðigöngupottinn. Nú er opið fyrir umsóknir og er umsóknarfrestur til og með 1. júlí 2024.
Nánari upplýsingar
– Verklagsreglur um úthlutun styrkja úr Gleðigöngupottinum
– Tengiliður vegna Gleðigöngupotts er gjaldkeri Hinsegin daga