Ásar á Íslandi

Sunnudaginn 25. febrúar 2018 komu nokkrir einstaklingar saman á Suðurgötu 3 þar sem Samtökin ’78 eru til húsa og stofnuðu Félag ása á Íslandi. Viktoría Birgisdóttir ræddi við Gyðu Bjarkadóttur, formann Ása á Íslandi, um eikynhneigð, stofnun félagsins og tilgang þess.

Hvað er það að vera ás eða eikynhneigður?

Að vera eikynhneigður er að laðast lítið eða ekkert kynferðislega að öðrum. Það er þó aðskilið rómantískri og líkamlegri aðlöðun. Þetta er einnig aðskilið kynhvöt (e. libido) en margir eikynhneigðir finna til kynhvatar þótt hún beinist ekki að neinum einstaklingi. Að vera ás er að vera eikynhneigður (e. asexual) eða eirómantískur (e. aromantic). Að vera eirómantískur er þegar viðkomandi laðast ekki á rómantískan hátt að öðrum. Til dæmis gæti viðkomandi verið gagnkynhneigður og eirómantískur.

Er þetta læknisfræðilegt (hormóna) vandamál?

Þetta er í raun spurning byggð á fordómum, að það þurfi að vera eitthvað að til að fólk sé eikynhneigt. Það er ekkert sem tengir eikynhneigð við neinn sjúkdóm, andlegan eða líkamlegan, neina lífsreynslu eða neitt þess háttar. Þetta er heldur ekki spurning um að hitta rétta makann. Eikynhneigðir og eirómantískir eru bara eins og þeir eru, rétt eins og gagnkynhneigðir eru eins og þeir eru. Það þarf ekkert að laga okkur.

Hvað kom til að þetta félag var stofnað?

Árið 2015 tóku nokkrir einstaklingar sig til og stofnuðu lokaðan hóp á Facebook fyrir ása á Íslandi. Það vantaði einhvern stað þar sem ásar gætu komið saman enda erum við fá. Árið 2017 spratt svo upp umræða á hinseginspjallinu á Facebook um hvort það væri ekki einhver staður sem hægt væri að benda fólki á þar sem það gæti hitt aðra ása. Þá var Facebook-síðan „Asexual á Íslandi“ stofnuð sem var síðar breytt í „Ásar á Íslandi“. Eftir það hefur jafn og stöðugur straumur einstaklinga sóst eftir félagsskap í hópnum. Við tókum þátt í gleðigöngunni í fyrsta skipti árið 2017 og fengum hvatningarverðlaun fyrir og það var sparkið í rassinn sem þurfti til að stofna formlegt félag. Það var gert í byrjun árs 2018 og félagið heitir Félag ása á Íslandi. Þetta er félag eikynhneigðra og eirómantískra. Þörfin fyrir þetta samfélag er mikil, það getur skipt miklu máli að vera í hópi fólks sem skilur mann og það er rík þörf fyrir að fræða samfélagið til að vinna gegn fordómum.

Hver eru ykkar markmið?

Markmið félagsins er í raun bara að eikynhneigð og eirómantík séu þekkt hugtök og samþykkt af samfélaginu. Að ef einstaklingur segist vera eikynhneigður krefjist það ekki frekari útskýringar, frekar en að segjast vera til dæmis vera gagnkynhneigður eða samkynhneigður. Að hugtakið sé það þekkt að fólk viti að það sé eikynhneigt en ekki til dæmis gagnkynhneigt. Sumir ásar tala um að þeir hafi sett sig í kynferðislegar aðstæður sem þeir vildu ekki vera í sökum hugmynda samfélagsins um hlutverk einstaklings sem er í sambandi. Þetta viljum við koma í veg fyrir. Að ásar þurfi ekki að sitja undir því að vera taldir„gallað eintak“ af því það sé eitthvað að þeim eða eitthvað hafi komið fyrir þá. Að ásar fái bara vera eins og þeir eru og séu ekki dæmdir fyrir það. Að það teljist eðlilegt að vera eikynhneigður.

Hvað eru margir í félaginu?

Formlega eru bara stofnfélagar í félaginu en við höfum ekki opnað fyrir skráningar, við erum að finna út úr því hvernig við viljum halda utan um það allt. En í Facebook-hópnum okkar eru rétt tæplega 50 einstaklingar. Það er hlutfallslega lág tala þar sem um 1% fólks er talið vera ásar eða um 3.500 Íslendingar. Nýrri rannsóknir benda þó til það gætu verið allt að 3%. Það að vera eikynhneigður eða eirómantískur er enn fremur óþekkt á Íslandi og því eru ef til vill margir það án þess að hafa áttað sig á því sem veldur oft mikilli vanlíðan hjá viðkomandi. Við viljum endilega ná til þeirra einstaklinga.

Eitthvað fleira sem þú vilt að komi fram?

Við hvetjum þá sem vilja kynna sér málið frekar eða komast í litla lokaða hópinn okkar að hafa samband við opnu Facebook-síðuna okkar,„Ásar á Íslandi“.