Baráttusöngur sem byggir brýr og fær fólk til að brosa

// Siggi Gunnars

Una Torfa stimplaði sig rækilega inn íslenskt tónlistarlíf í fyrra. Í upphafi ársins sendi hún frá sér sína fyrstu EP-plötu, „Flækt, týnd og einmanna“, sem vakti mikla athygli en lög af henni hlutu talsverða spilun í útvarpi ásamt laginu „Fyrrverandi“ sem hún sendi frá sér síðla árs. Una var dugleg að spila víða um land og kom meðal annars fram á Iceland Airwaves við góðar undirtektir. Athygli vakti að Una samdi sum lögin sín til kvenna en hún er tvíkynhneigð og hefur talað um hinseginleika sinn í viðtölum. Það var því engin spurning hvert átti að leita eftir lagi Hinsegin daga í ár.

„Ég fann fyrir mikilli ábyrgðartilfinningu þegar ég tók þetta verkefni að mér. Annað tvíkynhneigt fólk kannast eflaust við tilfinninguna um að vera ekki talið nógu hinsegin, að eiga stundum erfitt með að finna sér pláss í baráttunni og menningunni, sérstaklega þegar fólk er í sambandi við manneskju af gagnstæðu kyni. Mér finnst frábært að fá þetta tækifæri til að standa uppi á sviði og vera ég sjálf, með minn geggjaða kærasta með mér í allri undirbúningsvinnunni og flutningnum,“ segir Una þegar hún er spurð út í tilfinninguna við að taka það verkefni að sér að semja lag Hinsegin daga.

Mjög erfitt að semja lag Hinsegin daga í ár

Hún segir að það hafi verið mjög erfitt að semja lagið og að hún hafi í raun ekki vitað hvar hún ætti að byrja. Eins og áður sagði var kærasti Unu, Hafsteinn Þráinsson eða Haffi, með í ferlinu en þau eru ekki bara par heldur líka samstarfsfólk. „Við hittumst í stúdíóinu og byrjuðum að semja, fyrst datt mér ekkert í hug nema angurværar hugleiðingar um hvað það getur verið erfitt að vera öðruvísi, að vera stöðugt krafin um útskýringar beint og óbeint á því hver maður er í raun og veru. Ég byrjaði að skrifa texta við lagið en útgangspunkturinn var of neikvæður, fannst mér. Ég vildi semja baráttusöng sem byggir brýr og fær fólk til að brosa, trúa og þora og þessi texti var ekki þesslegur,“ segir Una sem þurfti að gera hlé á sköpunarferlinu til þess að spila á tónleikum. „Ég rauk út í bíl og skaust á gigg og kom svo beint aftur upp í stúdíó þar sem við Haffi ákváðum að byrja bara upp á nýtt. Ný laglína varð til og morguninn eftir settist ég niður á kaffihúsi, hlustaði á upptöku í símanum þar sem ég hummaði lagið og ég skrifaði nýjan texta sem ég er stolt af.“

Una segir að lagið sé fyrir okkur öll. „Það er áminning um hvað það ætti að vera einfalt að standa með þeim sem krefjast einskis annars en að fá að vera til og leita að hamingjunni. Þetta er lag um vináttu, samstöðu, stolt og hreina, tæra gleði. Ég vona svo innilega að fólk hafi gaman af, að lagið hreyfi við þeim sem hlusta og helst vona ég að einhver syngi með og dansi þegar ég spila það með hljómsveit á stóra sviðinu eftir Gleðigönguna, það væri algjör draumur,“ segir Una og eins og áður sagði vonast hún til að lagið byggi brýr. „Ég vil að lagið minni fólk á að við erum öll að leita að því sama, við viljum bara fá að tilheyra, vera elskuð af fólkinu okkar og fá að láta gott af okkur leiða í þessu litla, stutta lífi.“

Ný plata í bígerð

Það er annars nóg framundan hjá þessari öflugu og flottu listakonu, meðal annars ný plata. „Haffi er að hjálpa mér með þessa nýju tónlist eins og hann gerði með lagið mitt „Fyrrverandi“. Við erum með stærri útsetningar en á síðustu plötu, fleiri hljóðfæri og breiðara sound en inni á milli verða líka lög sem eru í mjög einföldum búningi. Mér finnst það svo fallegt og skemmtilegt,“ segir Una sem bætir við að hún ætli að halda áfram að spila sem víðast og prófa alls konar nýja hluti í þeim efnum.

Töfraorka yfir Hinsegin dögum

Unu þykir vænt um Hinsegin daga og eins og svo margt hinsegin fólk á hún góðar minningar frá hátíðinni. „Fyrsta árið eftir að ég var komin almennilega út úr skápnum efndi mamma til þess að við fjölskyldan færum í bröns fyrir gönguna og svo saman niður í bæ. Mér þótti svo vænt um það og núna er þetta órjúfanlegur hluti af hátíðahöldunum. Í fyrra fékk ég líka að spila í Hljómskálagarðinum og átti algjört draumakvöld eftir það þar sem ég kynntist nýjum vinum sem eru svo nánir mér í dag. Það svífur einhver töfraorka yfir vötnum á Hinsegin dögum og ég hvet öll til að koma og vera með, sérstaklega þau sem hafa aldrei komið áður,“ segir Una sem segist finna fyrir svo miklu stolti þegar hinsegin fólk gengur saman og berst fyrir réttindum sínum með því að hafa gaman og sýna hvað lífið geti verið fallegt þegar öll fá frelsi til þess að vera þau sjálf. Hún vonar að öll skemmti sér vel á Hinsegin dögum og gleymi ekki gleðinni. „Samhliða öllum mikilvægum framförum í stjórnsýslunni og baráttunni við bakslagið megum við aldrei gleyma gleðinni, aldrei gleyma því hvað það er fallegt þegar fólk lætur ljós sitt skína og hvað það er mikilvægt að lyfta því upp. Skemmtið ykkur vel, verið nákvæmlega eins og þið viljið vera og veljið alltaf ástina fram yfir óttann.“

Þú ert stormur

Ef ég dett
Viltu lyfta mér upp?
Viltu leiða mig
Í gegnum þetta’ allt
Ég vil hlaupa hratt og vil ekki gera það ein
Ég vil ekki vera ein
Ég vil ekki vera ein

Viltu öskra með mér út í myrkrið?
Viltu dansa hér langt fram á nótt?
Grenja svo úr hlátri
Enginn skilur neitt

Viltu svara mér þegar ég hringi?
Viltu hlusta’ á mig tala í hringi svo lengi
að við sofnum og leysum ekki neitt

Því ég þarf ekki svör
Ég þarf engin ráð
Ég vil bara að við
Getum verið við sjálf

Ef ég dett
Viltu lyfta mér upp?
Viltu leiða mig
Í gegnum þetta’ allt
Ég vil hlaupa hratt og vil ekki gera það ein
Ég vil ekki vera ein
Ég vil ekki vera ein

Komdu og sýndu þeim allt sem þú getur
Taktu endalaust pláss þú ert stormur
Vindur sem að þýtur
Um loftin eins og fugl

Ég skal svara þér þegar þú hringir
Ég skal hlusta á þig tala í hringi svo lengi
að þú sofnar, ég skelli aldrei á

Því þú þarft ekki svör og þú þarft engin ráð
Þú þarft byr undir báða vængi
Þú þarft ljós þú þarft pláss
Stattu upp hafðu hátt
Þú ert frjáls

Ef ég dett
Viltu lyfta mér upp?
Viltu leiða mig
Í gegnum þetta’ allt
Ég vil hlaupa hratt og vil ekki gera það ein
Ég vil ekki vera ein
Ég vil ekki vera ein

Hvað sem þeim finnst og þau segja
Þarftu ekki að breyta neinu
Finndu stoltið, vertu þú
Það er enginn til sem veit allt betur
Enginn annar sem að getur
Fundið þig og hleypt þér út

Ef þú vilt
skal ég lyfta þér upp
Ég skal leiða þig
Í gegnum þetta’ allt
Fljúgum hátt og hratt
við þurfum ekki að vera ein