Ef þú getur ekki sýnt mér virðingu

„If you can’t respect me, you’ve got no business being here.“
–Harvey við móður sína í kvikmyndinni Torch Song Trilogy

Það er engin tilviljun að ganga Hinsegin daga kennir sig við gleði. Hún er staðfesting á stolti sem fæstum okkar reyndist auðfengið og auðfundið. Með gleðigöngunni fögnum við sigrum sem unnist hafa í mannréttindabaráttu hinsegin fólks á Íslandi og látum í ljósi þakklæti til ættingja okkar og vina fyrir að koma með á bátinn og standa með okkur af heilum hug. Með sýnileikanum styrkjum við líka það fólk sem vildi svo gjarnan brjótast út úr skápnum en sér ennþá ástæðu til að hika.

Það stingur þess vegna í stúf við markmið okkar þegar mannvirðing og jafnrétti eru höfð að háði og spotti. Það hefur gerst hvað eftir annað hin síðustu ár að gagnkynhneigt fólk sem verið er að steggja og gæsa fyrir brúðkaupið reynir að troðast óboðið inn í gleðigönguna, ekki til að sýna samstöðu, heldur er tilgangurinn sá að lýsa niðurlægingu viðkomandi steggs eða gæsar. „Ha, ha, auminginn, villtist inní Gay Pride gönguna! Er hann kannski hommi?!“ Myndbandsupptökur af „ævintýrinu“ eru síðan sýndar í brúðkaupsveislunni og hlegið dátt að óförum brúðarinnar eða brúðgumans.

Þátttakendum sem ganga gleðigöngu með mannréttindum, gegn fordómum, er alls ekki bjóðandi að lenda við hlið einhvers sem sýnir göngunni og þátttakendum þá lítilsvirðingu sem fylgir steggjum og gæsum í brúðkaupshugleiðingum á þessum vettvangi. Við bjóðum alla hjartanlega velkomna sem slást í hóp göngufólks af góðum hug – líka fuglana á Tjörninni ef þeim býður svo við að horfa – en biðjum ófiðraða steggi og fjaðralausar gæsir um að skemmta sér á öðrum vettvangi þennan dag.