Gæsanir og steggjanir

Gleðigangan – Ganga gleðinnar

Það er engin tilviljun að ganga Hinsegin daga kennir sig við gleði. Hún er staðfesting á stolti sem fæstum okkar reyndist auðfengið og auðfundið. Með gleðigöngunni fögnum við sigrum sem unnist hafa í mannréttindabaráttu hinsegin fólks á Íslandi og látum í ljósi þakklæti til ættingja okkar og vina fyrir að koma með á bátinn og standa með okkur af heilum hug.

Sýnileikinn er meira en táknrænn – hann skiptir sköpum. Með því að mæta og vera sýnileg styrkjum við þá sem enn finna ekki öryggi, kjark eða rými til að stíga fram. Þá sem langar til að koma út úr skápnum, en finna enn ástæðu til að hika.

Þegar stolt er haft að spotti

Það stingur þess vegna í stúf við markmið okkar þegar mannvirðing og jafnrétti eru höfð að háði og spotti.

Það hefur gerst hvað eftir annað hin síðustu ár að gagnkynhneigt fólk sem verið er að steggja og gæsa fyrir brúðkaupið reynir að troðast óboðið inn í gleðigönguna, ekki til að sýna samstöðu, heldur er tilgangurinn sá að lýsa niðurlægingu viðkomandi steggs eða gæsar. „Ha, ha, auminginn, villtist inní Gay Pride gönguna! Er hann kannski hommi?!“ Myndbandsupptökur af „ævintýrinu“ eru síðan sýndar í brúðkaupsveislunni og hlegið dátt að óförum brúðarinnar eða brúðgumans.

Sýnum virðingu

Þátttakendur í göngu sem er tileinkuð mannréttindum og baráttu gegn fordómum eiga ekki að þurfa að lenda við hlið einhvers sem sýnir göngunni og þátttakendum hennar þá lítilsvirðingu sem fylgir steggjum og gæsum í brúðkaupshugleiðingum á þessum vettvangi.

Við bjóðum öll hjartanlega velkomin sem slást í hóp göngufólks af góðum hug – líka fuglana á Tjörninni ef þeim býður svo við að horfa – en biðjum ófiðraða steggi og fjaðralausar gæsir um að skemmta sér á öðrum vettvangi þennan dag.