Hlaðvarpshorn Unnsteins

Unnsteinn Jóhannsson er mörgum kunnur en hann hefur verið virkur í hinsegin samfélaginu í áraraðir og komið þar víða við. Unnsteinn er nú varaformaður Samtakanna ’78 og þegar hann er ekki að pakka inn múmínbollum fyrir viðskiptavini Epal er hann ýmist úti í göngutúr með hundinn eða á róló með dóttur sinni og eiginmanni. 

Unnsteinn á oft erfitt með að slaka á en þegar hann gerir það gerir hann það með rauðvínsglasið í annarri, afþurrkunarklútinn í hinni og hlustar á gott hlaðvarp meðan hann vinnur heimilisverkin. Unnsteinn hefur því orðið yfirgripsmikla þekkingu á þeim málum og deilir hér með lesendum nokkrum af sínum uppáhaldsþáttum.

Nancy
Nancy er eitt af uppáhaldshlaðvörpunum mínum. Stjórnendur þess eru Tobin Low og Kathy Tu. Það er augljóst að þau eru góðir vinir, dýnamíkin milli þeirra er algjörlega frábær og dregur hlustandann að þáttunum. Þau fjalla um allan regnbogaskalann og oft eru þættirnir jafn fallegir og þeir eru erfiðir hlustunar. Þau hafa opnað augu mín fyrir hinseginleikanum og ýtt við mér á marga vegu. Það voru því sorgarfréttir sem bárust í vor um að Nancy væri að hætta. Þau hafa búið til samfélag í kringum þættina sína og eru í þessum töluðu orðum að safna lista á opnu Google Docs-skjali yfir öll þau hinsegin hlaðvörp sem hlustendur þeirra mæla með. Ég mæli með að hlusta á Nancy, en líka að skoða listann þeirra og fylgja Tobin og Kathy því þau eru bara dásamleg.

Making Gay History
Mig rekur í minni að Ásta Kristín Benediksdóttir hafi mælt með þessu hlaðvarpi inni á Hinseginspjallinu. Það voru góð meðmæli. Eric Markus leiðir okkur í gegnum gömul viðtöl við hinsegin hetjur sem öll hafa sett mark sitt á baráttu hinsegin fólks í Bandaríkjunum. Ég hef margsinnis grátið við hlustun, en á sama tíma hafa viðtölin og þættirnir hvatt mig áfram og ýtt við aktívistanum sem lifir innra með mér. Það er í raun algjörlega sturlað að þessi viðtöl séu til og að þessar raddir séu loksins að fá að heyrast. Við getum lært svo mikið af sögunni og nýtt okkur þessar sögur sem hvatningu til að gera betur og halda áfram. Takk Ásta Kristín fyrir að mæla með þessu hlaðvarpi!

Sex Nerd Sandra
Þetta hlaðvarp sameinar áhugamál mín vel. Kynlíf og hlaðvörp og það sem meira er, þá er Sandra hinsegin og „sex positive“. Í þessu hlaðvarpi fær Sandra gesti til sín til að fjalla um allt milli himins og jarðar er kemur að kynheilbrigði, kynlífi og kynverunni. Þættirnir eru oft mjög fyndnir en líka ótrúlega fræðandi. Það er svo gott að geta hlustað á fólk tala saman á opinskáan og skemmtilegan máta um kynlíf. Hlaðvarpið er fyrir öll þau sem eru ekki börn lengur og ég mæli með að skella á sig heyrnartólunum og fara í langan og góðan göngutúr með hund.

AfroQueer
Nýlega fór ég að hlusta á AfroQueer sem eru þættir um raunveruleika hinsegin fólks víðs vegar í Afríku, þvert á heimsálfuna. Hlaðvarpið nær utan um allt frá fallegum ástarsögum, hvernig lagasetningar hafa áhrif á líf og raunveruleika hinsegin fólks, stéttskiptingu, fjölskylduna og kynlíf. Selly Thiam, Aida Holly-Nambi og teymið þeirra hafa náð að fanga athygli mína svo um munar og er ég að hámhlusta á þættina þessi misserin. Þeir hafa allt sem góð hlaðvörp þurfa, sögur sem eru áhugaverðar og vekja mann til umhugsunar, persónulegar sögur sem ýta við þeim sem hlusta. Það er einmitt þetta sem hefur gert mig að hlaðvarpsfíkli, að geta fundið svona dýrmæta þætti þar sem ég fæ að læra um líf annarra og setja mig í spor þeirra til að auka samkennd og víðsýni mína.

Don’t tell my mother
Svo má líka hlæja og hafa gaman. Þessir þættir eru samansafn af alls konar sögum sem sagðar eru á sviði fyrir framan áhorfendur. Sögur sem mörg myndu aldrei segja foreldrum sínum. Það er smá tími síðan ég hlustaði síðast en ég var fljótur að brenna í gegnum þættina og man að ég hló mikið. Hinseginmálefni eru tekin fyrir jafnt sem alls konar önnur vandræðaleg móment í lífi fólks. Það er eitthvað svo ekta að heyra frá fólki segja fullum sal af ókunnugum frá sínum vandræðalegustu sögum.