Ljóðasamkeppni Hinsegin daga 2025

Upp með fjaðurpennanna kæru skáld! Hinsegin dagar blása til sinnar sívinsælu ljóðasamkeppni! Síðustu ár hafa stórkostleg skáld stigið fram og verk þeirra vakið verðskuldaða athygli. Öll eru hvött til þátttöku, hvort sem um er að ræða atvinnuskáld eða þau sem hingað til hafa eingöngu skrifað fyrir skúffuna. Dómnefnd skipa Viðar Eggertsson, Harpa Rún Kristjánsdóttir og Anton Helgi Jónsson og fá þau ljóðin afhent ómerkt og órekjanleg til skáldanna. Ljóðin mega vera á hvaða tungumáli sem er en ekki er ábyrgst að dómnefnd skilji öll tungumál heimsins.

Sendið ykkar bestu ljóð á netfangið huslestrar@gmail.com fyrir miðnætti 30. júlí.

Úrslit verða tilkynnt á Hýrum húslestrum, á neðri hæð Pride centre (Iðnó) þann 7. ágúst.