Ræða Kristínar Ómarsdóttur á Opnunarhátíð Hinsegin daga 2026

Á meðan vatnsyfirborð Dónár nær sögulegu lágmarki, jöklar hopa, hafsstraumar snúast, hitastig lækkar, regnský þyngjast – fréttist lítið af birgðarstöðu ástarinnar í heiminum.

Í ljósi fregna af stríðsrekstri og þjóðarmorðum hlýtur kraftur hennar að ná sama sögulega lágmarki og á mörgum öðrum tímum.

Enn hefur ekki fundist leið til að hagnýta ást, til að væða ást, vonandi finnst sú leið aldrei. Aldrei, aldrei.

Sannarlega hafa menn reynt að stjórna henni, ná henni undir sig, ástinni, tekist að kúga hana, halda henni niðri, formfesta – um margar aldir sem ég tel ekki nema til þess að fyllast sorg yfir hræðilegum örlögum alltof margra.

Ég held, og mig grunar að ást – elska – kærleikur – væntumþykja – sé frumefni sem sannarlega eigi eftir að leysast úr læðingi.

Hatrið

sækir núumtíðir í sig veðrið, rífur til sín vængi sem að mínu viti skyldu vera ástarinnar. Á hértímum er hatrið hagnýtt af heimseigendum og stjórnmálafólki, það er vætt, rafvætt, til að hafa áhrif á og ná völdum yfir lífi og kjörum fólks, skapa glundroða, ótta, meiða, særa, útiloka, eyðileggja – drepa?

Æj,

bara ef ástin væri alls staðar og alltaf frjáls og að það yrði aldrei settar á hana hömlur og henni komið fyrir í ramma og bönd sem mörg heita fallegum nöfnum. Sagði ekki einhver að það þyrfti bara að skrúfa frá og þá streymir hún blossar, ástin, í stíðum staumum:

skrúfum frá!

Eitt sinn fyrir löngu sat ég á lgbtqia+ bar á mánudagskvöldi í Reykjavík með nokkrum. Transfólki, hommum, lesbíum. Eflaust, eftiráaðhyggja, hefði einhverjum fjarstöddum fundist við eiga hrikalega bágt. Að við hefðum fórnað miklu, uppskorið ekkert. Kvöldið var smá sorglegt, kannski útaf veðrinu, kannski útaf því það var mánudagskvöld, kannski áttum við bara að vera heima að borða fisk frekar en að sitja á bar að bíða eftir engu. Áþreifanlega hvíldi einhver sorg yfir mannskapnum. En ég fann líka rosalega vel að í dularfullum pokarhornum og skúmaskotum ætti hvertokkar ævintýrilegan fjársjóð sem kynni að ryðjast, og yrði aldrei mögulegt að selja. Glóandi blóm, glóandi angan sem byggi djúpt inní hjartanu.

Ég þekki konu sem labbaði eitt sinn niður af Skólavörðuholti og sá mörg þúsund ástarbréf renna í lækjum niður Skólavörðustíg. Ég hefði viljað sjá sýnina hennar en ég þarf þess ekki endilega – ég held og ég trúi því að sýnin hafi verið raunveruleg:

Að þrátt fyrir rándýrseðlið í mannskepnunni skrifi hún endalaust ekkert nema ástarbréf allan guðslangan daginn.

Gætu kraftar eins hóps í að sameinast í fyrirlitningu og hatri á einu og upphafningu og dýrkun á öðru – gætu þessir kraftar átt upptök sín hugsanlega í tortímingarhvöt?

Afþví að sagan sýnir og segir það endurtekið að þegar hópur byrjar að hata eina tegund af manneskjum getur hópurinn ekki hætt, og finnur uppá næsta fórnarlambi og næsta og næsta, þangað til ekkert er eftir og enginn er eftir: þetta er hættuleikur sem mjög erfitt hefur reynst að skrúfa fyrir.

Er erfiðara að elska en að tala?

Er erfiðara að elska en að keyra bíl?

Hér vara ég fólk við að dvelja of mikið inní fólksbifreiðum með elskunni sinni, nema kannski til þess að skoða sólarlagið í ágústmánuðinum; til langs tíma lognast ást útaf í þrengslum fólksbifreiða –

Er erfiðara að elska en að deyja?

Er að elska erfiðasta og flóknasta listin?

Er miklu mun auðveldara að hata?

Að hata er einsog að stytta sér leið fyrir skrýtnan ávinning sem seinna uppgötvast að var glitrandi blekking. Svona hilling. Mirage. Sem brotnar og maður sker sig á brotunum – kannski ekki maður sjálfur en að minnsta kosti allt lífið sjálft – það skerst – og sárin gróa aldrei.

Eitt það fallega og góða við manneskjur og dýr er að þau þurfa alltaf fyrir rest að fara að sofa – líka í stíðum – líka í hatri – vonandi leggi stjórnherrar heimsins og haturstefnur sig sem oftast. Svo á meðan þau sofi einn eftirmiddag komist á öðruvísi aðferðir, vængjaðar ást, við að skipuleggja lífsskilyrðin í veröldinni.

Megi þá krauma freyða bulla vella ríkulega uppúr brunnum hennar sem ég þarf ekki að nefna oftar á nafn –

Hún vill aldrei láta temja sig.

Höf: Kristín Ómarsdóttir, Opnunarhátíð Hinsegin daga 2026.