Ljóðasamkeppni Hinsegin daga var haldin í tíunda skiptið nú í sumar, en samkeppnin hefur verið fastur liður í hátíðarhöldum Hinsegin daga frá árinu 2016. Markmiðið er að gefa hinsegin röddum rými og hefja upp hinsegin ljóð og skáldverk. Alls bárust 47 ljóð í keppnina í ár, en dómnefnd fer yfir allar innsendar tillögur nafnlaust. Í dómnefnd sátu Anton Helgi Jónsson, Anna Rós Árnadóttir og Ásdís Óladóttir.

Hér má lesa ljóðin sem voru í 1.-3. sæti ásamt rökstuðningi dómnefndar.
1. sæti
birki
Höfundur: Esjar Eiríkur Didziokas
skógurinn þéttist með hverri sprautunni
þykkur vökvinn streymir úr nálinni
og seðjar þyrstar rætur
seytlar í gegnum mig
eins og síróp í gegnum gljúpt berg
skóglendið vex frá nafla niður í nærbuxur
undir húð minni skríða ormar og sleipir álar
og mig langar að kreista þá út eins og gröft úr bólu
Á kjálka, hálsi og kinnum vex mér skegg
mjúk og ný hár minna á íslenskan birkiskóg
trén eru gagnsæ og strjál
ég er með fléttur á öxlunum, en skófir á hnjánum
sjö hár á tánum
lífið er blítt og hlýtt og langt eins og ánamaðkur,
slímugt þegar ég snerti það
Álit dómnefndar:
Ljóðið „birki“ lýsir lífsreynslu sem hugsanlega hefur ekki verið ort um á íslensku áður. Ljóðið er myndrænt og kallar jafnt fram seiðandi fegurð og kitlandi spurningar, ormar og sleipir álar fara á kreik og á kjálkum, hálsi og kinnum vex skegg. Gljúpt berg og líkami manneskjunnar sem talar í ljóðinu hverfast í eitt, birkiskógur og hárvöxtur festa rætur og vitna um líf og grósku.
2. sæti
Í stólnum
Höfundur: Gugga
Heimurinn í tannlæknaárum er hálfmáni, eða frekar, tanngarður, eða frekar, kjálki. Orð í tannlæknaorðum eru eins og tólin, uppstillt á bakka. Það er liðið ár frá mér, í gugguárum, en fyrir þér er þetta vinstri fótur að nema við grund, á næsta ári spyrnir hann frá. Ár í tannlæknaárum er ytri helmingur hæls, bakki iljar og neðstu þrjár táslurnar. Næsta ár er innri helmingur, rjáfrið og stóra og langa tá. Dagatöl tannlækna eru full af nöfnum, blómhnappar í tanngarði. Tölvur tannlækna eru fullar af sneiðmyndum, krónublöð að opnast. Áður en myndinn er tekin bít ég í spjald og ber blý um háls mér. Áður en þú tekur myndina stígur þú út úr herberginu. Skoðun og hreinsun er 30 mínutur. Strætóferðin er klukkutími aðra leið. Í tannlæknatíma er strætóferð tvær árlegar skoðanir. Í guggutíma er árleg skoðun tveir strætómiðar. Í tannlæknatíma er ég enn ófermd, hikandi, blómhnappur óútsprunginn. Í árlegri skoðun er ég kona í stól, í gömlu stofunni á hlemm sit ég sjö ára og vel mér límmiða, í strætóinum fylgist ég með stikunni fyllast og í stólnum skrapar hún burt steina. Kjálki í tannlæknafræðum er garður og holdið hylur rætur. Garður í guggufræðum eru hvít blóm á grönnum stilk, blómhnappur að breytast í ber. Að ári spennist fótur og spyrnir frá er ég stíg upp í strætoinn, að ári opnast munnur og bítur í spjald og þú stígur út. Að ári skoðum við myndir á skjá, drjúpandi ber á ílöngum stilk í þéttgrónum garði. Í tannlæknafræðum eru steinar eitthvað sem vex, eitthvað sem festir rætur. Hvítar tennur á svörtum bakgrunni, rauðflekkótt ber í rennvotri mold. Heimurinn í tannlæknafræðum er hálfmáni, eða frekar kjálki, eða frekar tanngarður, eða frekar bros, eða frekar ein manneskja af átta einu sinni á ári. Í tannlæknafræðum eru orð eins og tól á bakka og tíminn eins og kraninn og þráin eins og vatnið og glasið eins og ég. Orð eru bleik eins og munnskol eða hvít eins og tennur. Rótgróin eða flæðandi. Þrífum steina úr beði. Sjáumst að ári, brosum og kveðjum og ég stíg upp í strætó. Strætóferðin er tveggja kúnna löng. Ég kem heim, krýp í garðinum og týni steina í ár.
Álit dómnefndar:
Ljóðið „Í stólnum“ hefst með orðunum „Heimurinn í tannlæknaárum …“ Það er ekki auðvelt að skilgreina þennan textann eða segja til um það hver meiningin er með honum. Hann hegðar sér þó eins og góð ljóð gera iðulega; sýnir fram á það hvernig málið og skáldskapurinn geta varpað algjörlega nýju ljósi á umhverfi sem flestir hefðu talið að þeir vissu allt um. Um leið og textinn er auðskiljanlegur er hann óræður og vekur upp ótal spurningar. Eins og gott ljóð heldur hann áfram að lifa í huganum löngu eftir að lestri lýkur.
3. sæti
Tungumál
Höfundur: Bergrún Íris Sævarsdóttir
Ætti ég að semja
til þín ástarljóð,
þyrfti ég fyrst
að finna upp tungumálið,
þvinga stórar
tilfinningar
í of lítil orð,
láta sem bókstafir
geti borið ást,
þegar við vitum báðar
að það sem við
vildum helst segja
fæst aðeins skilið
í titrandi andardrætti,
sæluhrolli og stunu,
andvarpi í eyra,
að bókstafir
eru merkingarlausir
nema þeir séu dregnir
eftir barmi mínum
undurblíðum strokum
fingurgóma þinna.
Álit dómnefndar:
Tungumál heitir ljóðið sem dómnefnd setti í þriðja sætið. Ljóðið snýst um ást og vanmátt orða þegar kemur að því að tjá hana, skáldið vill ekki þvinga stórar tilfinningar í of lítil orð. Ljóðið má kalla sígilda ástarjátningu og samt ekki. Mörg svipuð ljóð hafa verið ort gegnum tíðina, skáldið vill tjá ást en efast um að orð geti tjáð hana. Hér er það hins vegar ást tveggja kvenna sem er í brennidepli og þótt segja megi að öll ást sé að einhverju leyti eins skiptir máli að markera einmitt þessa staðreynd.