Aðalfundur Hinsegin daga var haldinn á mánudaginn 17. nóvember. Samkvæmt samþykktum félagsins eru stjórnarmenn kjörnir til tveggja ára í senn og er kosið í embætti á víxl. Að þessu sinni var kosið í stöður formanns og tveggja meðstjórnenda.
Alls bárust þrjú framboð: eitt til formanns og tvö til meðstjórnenda. Helga Haraldsdóttir bauð sig áfram fram til formanns og Alexander Aron og Sigríður Ásdís buðu sig aftur fram sem meðstjórnendur. Þar sem engin mótframboð bárust voru þau öll sjálfkjörin og hlutu einróma stuðning fundargesta. Stjórnin helst því óbreytt frá fyrra ári.

2025-2026
