Það er okkur sönn ánægja að tilkynna að við höfum veitt þremur viðburðum styrk úr viðburðapotti Hinsegin daga sem ætlaður er til að styðja við sjálfstætt skipulagða viðburði utan aðaldagskrár Hisegin daga – svokallaða off venue viðburði.
Markmið viðburðapottsins er að hvetja til frumkvæðis, grasrótarstarfs og fjölbreytni í viðburðarhaldi á meðan á hátíðinni stendur og teljum við að þessir viðburðir endurspegli þessi gildi vel.
Þeir viðburðir sem fengu styrk eru:
-> Pride Lessan
-> Litrófan Pride Edition
-> Til hennar / To her
Við viljum jafnframt þakka öllum hinum sem sóttu um styrk – það var virkilega hvetjandi að sjá þá fjölbreyttu viðburði sem samfélagið er að bjóða upp á í tilefni af Hinsegin dögum. Þótt ekki hafi verið unnt að styrkja allar hugmyndir að þessu sinni þá hvetjum við ykkur eindregið til að halda áfram að skapa og skipuleggja og sækja um að ári!
Við óskum styrkþegunum til hamingju og hlökkum til að sjá ykkur öll á Hinsegin dögum!