Um heiðursmerki Samtakanna ‘78

Höfundur: Álfur Birkir Bjarnason

Two people stand in front of a screen. One holds the shoulder of the other in a friendly manner.

Öllum er mikilvægt að þakka fyrir veitta aðstoð, velvild eða samvinnu en laun fyrir ævistarf í þágu mannréttinda geta aldrei orðið önnur en heiðurinn. Þar að auki hafa félagasamtök gjarnan fátt annað að gefa en velvild, heiður og mögulega lítið barmmerki. Þetta er einmitt hlutverk heiðursmerkis Samtakanna ‘78, að þakka, heiðra og launa ómetanleg störf í þágu hinsegin fólks. Merkið er veitt þeim sem hafa unnið stórvirki á sviði mannréttinda hinsegin fólks, stjórnmála, samfélagsmála eða á bak við tjöldin, hvort sem það hefur verið með beinni aðkomu eða óbeint. Á undanförnum fimm árum hefur heiðursmerki Samtakanna ‘78 verið veitt fjórum sinnum.

Árið 2017 hlaut Fríða Agnarsdóttir heiðursmerkið fyrir óeigingjörn störf í þágu félagsins. Fríða hafði um árabil setið í stjórn félagsins, haft umsjón með regnbogasal Samtakanna ‘78 og mannað barinn á opnum kvöldum. Hún hafði stýrt, stokkið til, aðstoðað, ráðlagt, skúrað og allt þar á milli. Segja má að á vettvangi Samtakanna ‘78 hafi Fríða unnið ósýnilegt ævistarf en það er engu að  síður mikilvægt starf. Samtökin ‘78 væru ekki þau sem þau eru í dag ef ekki hefði verið fyrir dýrmæt störf Fríðu, sem þó voru oft unnin í sjálfboðavinnu.

A smiling person with short hair
Fríða Agnarsdóttir vann ósýnilegt ævistarf sem var verðlaunað árið 2017
A person with a hat in front of balloons
Gunna var fyrirmyndarbandamaður, vinur og baráttukona.

Guðrún Ögmundsdóttir hlaut heiðursmerki Samtakanna ‘78 árið 2019 fyrir þrotlausa baráttu, m.a. fyrir jöfnum hjúskap samkynja para. Guðrún, eða Gunna eins og mörg okkar kölluðum hana, sat á þingi árin 1999-2007 og var þar einn helsti erindreki hinsegin fólks. Það var meðal annars fyrir tilstilli Gunnu að frumvarp sem færði okkur fullan hjúskaparrétt, ættleiðingarrétt para af sama kyni og rétt allra kvenna til tæknifrjóvgunar varð að lögum árið 2006. Þótt kirkjan stæði enn utan við þessi lög var þetta mikilvægur áfangasigur fyrir hinsegin fólk á Íslandi og til marks um eldmóð Gunnu á sviði mannréttinda. Guðrún var heiðruð fyrir að vera fyrirmyndarbandamaður, vinur og baráttukona.

Heiðursmerki Samtakanna ‘78 var veitt Jóhönnu Sigurðardóttur, fyrsta opinberlega samkynhneigða forsætisráðherra heims, árið 2021. Þegar Jóhanna varð forsætisráðherra árið 2009 þótti það ekki endilega tiltökumál hér heima að hún væri lesbía en enginn skyldi efast um mikilvægi þessa áfanga í baráttu hinsegin fólks á heimsvísu. Í Jóhönnu fékk hinsegin fólk sterka fyrirmynd sem fór í opinberar heimsóknir um víða veröld með konu sinni og braut hvert glerþakið á fætur öðru. Það var því sérlega sælt að ein hjúskaparlög voru að endingu samþykkt í forsætisráðherratíð Jóhönnu og að þær Jónína hafi verið með fyrstu samkynja pörunum til að ganga í hjónaband eftir gildistöku þeirra. Það skiptir máli hver ræður. Með tilvist sinni og samfélagsstöðu hefur Jóhanna haft áhrif á sjálfsmynd ótal hinsegin fólks.

A white haired person in a podium
Jóhanna var fyrsta opinberlega samkynhneigði forsætisráðherra heims
A person in front of a screen
Einar Þór Jónsson hefur barist fyrir réttindum HIV jákvæðra og hinsegin fólks

Nú síðast í vor hlaut Einar Þór Jónsson heiðursmerki Samtakanna ‘78 fyrir samtvinnaða baráttu sína fyrir réttindum HIV jákvæðs fólks og hinsegin fólks á Íslandi. Einar Þór var einn fyrsti Íslendingurinn til að tala opinskátt um líf sitt með HIV undir nafni. Þetta var fyrir þrjátíu árum og alla tíð síðan hefur Einar Þór verið hluti af forystu HIV jákvæðra á Íslandi. Saga HIV á Íslandi er samofin sögu Samtakanna ‘78. Með jákvæðni, æðruleysi og þrautseigju hefur Einari og samstarfsfólki hans tekist að snúa viðhorfi almennings til HIV. Fyrir samfélag hinsegin fólks er ævistarf Einars Þórs hvalreki sem seint verða gerð almennileg skil.


Þau eru fjölbreytileg handtökin í sögu hinsegin fólks á Íslandi. Hver ævi einstök, hver sigur mikilvægur og ekkert unnið eitt síns liðs. Samtökin ‘78 standa í þakkarskuld við fjölmargt fólk og ég vona að ég fái tækifæri til að smella litlu barmmerki í vel valið hnappagat við tækifæri. Það er í senn það minnsta og mikilvægasta sem ég get gert.