Að taka þátt í Gleðigöngunni

Gleðigangan er gleðiganga hinsegin samfélagsins og þeirra sem styðja réttindi og sýnileika hinsegin fólks.

Einstaklingar ganga með þeim hópum og félagasamtökum sem taka þátt í göngunni.

Samtökin ‘78 taka þátt í göngunni og hafa undanfarin ár haft skráningarform á heimasíðu sinni fyrir einstaklinga sem vilja ganga með þeim.

Við mælum með að fylgjast með heimasíðu og samfélagsmiðlum Samtakanna ‘78 fyrir nánari upplýsingar..

Ef þið vitið af öðrum hópum sem hyggjast taka þátt og ykkur langar að ganga með þeim, er einnig hægt að hafa beint samband við viðkomandi hóp og kanna málið.

Við hlökkum til að sjá ykkur í Gleðigöngunni.

Gleðigangan er rými hinsegin samfélagsins og bandafólks þess. Hatursorðræða eða aðkoma sem beinist gegn hinsegin fólki á ekki heima í göngunni.