Menningarpottur Hinsegin daga

Menningarpotturinn er ætlaður til að styðja við og efla menningarflóru hinsegin fólks allt árið um kring. Markmið pottsins er að veita styrki til fjölbreyttra viðburða sem ekki fara fram á sjálfum Hinsegin dögum til að skapa sýnileika, vettvang og samfélag allt árið um kring og styðja við aðrar hinsegin hátíðir.

Með þessu vilja Hinsegin dagar styrkja tengsl innan hinsegin samfélagsins, skapa fleiri vettvanga fyrir hinsegin fólk til að koma saman og stuðla að því að hinsegin menning sé lifandi og sýnileg allt árið um kring.

Hverjir geta sótt um?

Öll sem standa að hinsegin viðburðum á öðrum tíma en Hinsegin dagar geta sótt um styrk – einstaklingar, hópar, listafólk og félagasamtök.

💡Hvað er stykhæft?

  • Leiga á rými og búnaði
  • Framleiðslukostnaður (t.d. hljóðkerfi, prentun)
  • Kynningarefni og auglýsingar
  • Aðgengisúrbætur eða upplýsingar um aðgengi

Við styrkjum ekki laun eða þóknanir

Næsti umsóknarfrestur er 20. apríl.

Menningarpottur Hinsegin daga

Þessi texti gæti verið notaður í frétt á vegum Hinsegin daga // This text might be used in a news article by Reykjavik Pride
DD slash MM slash YYYY
Gildi Hinsegin daga eru jafnrétti, fjölbreytileiki, aðgengi og þátttaka // The values of Reykjavik Pride are equality, diversity, accessibility and participation
Styrkupphæðir geta verið allt að 200.000 kr // Grants can be up to 200.000 ISK

Fylgiskjöl

Max. file size: 128 MB.
Á sniðinu bankanúmer-höfuðbók-reikningsnúmer // In the format of bank-ledger-account number