Taktu þátt

Taktu þátt í að skapa ógleymanlegar upplifanir. Hvort sem þú velur að vera sjálfboðaliði eða skipuleggja viðburð, þá skiptir hvert framlag máli!

Gleðigangan er hápunktur Hinsegin daga. Í henni sameinast lesbíur, hommar, tví- og pankynhneigðir, trans fólk, intersex fólk og aðrir hinsegin einstaklingar ásamt fjölskyldum sínum og vinum til að staðfesta tilveru sína og minna á baráttumál sín.
Ef þú vilt taka þátt í gleðigöngunni þá geturðu skráð þig eða hópinn þinn hér fyrir neðan.

Hinsegin dagar

Hinsegin dagar bjóða upp á styrki til að aðstoða við fjármögnun atriða í gleðigöngunni og auðvelda aðgengi að viðburðum.

Finnurðu ekki það sem þú leitar að? Hafðu þá samband við okkur á pride@hinsegindagar.is.